,,Þetta er ótrúleg tilfinning og ég hef aldrei vitað annað eins. Við vorum í baráttu um að halda sæti okkar í deildinni á síðustu leiktíð en á laugardaginn lyftum við Englandsbikarnum á loft,“ sagði Jamie Vardy,“ ein af hetjunum í liði Leicester við fréttamenn en Vardy og félagar hans í Leicester tryggðu sér Englandsmeistaratitilinn í gærkvöld.
„Þetta er mesta afrekið í sögu þessa frábæra félagsins og okkur finnst öllum forréttindi að
vera hluti af þessu liði,“ segir Vardy en fyrir nokkrum árum spilaði hann í ensku utandeildinni en er nú einn heitasti framherji í Evrópu og þo víðar færi leitað.
Vardy var á dögunum útnefndur leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni af fréttamönnum á Englandi og var valinn í lið ársins.