Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, verður eftirlitsmaður UEFA á leik Liverpool og Villarreal í undanúrslitum Evrópudeildar UEFA sem fram fer á Anfield í Liverpool í kvöld.
Villarreal vann fyrri leikinn á Spáni, 1:0, og stendur því vel að vígi, rétt eins og handhafar Evrópubikarsins, Sevilla, sem gerði 2:2 jafntefli gegn Shakhtar Donetsk í Úkraínu í hinum undanúrslitaleiknum.
Geir birti fyrir stundu eftirfarandi götumynd frá Liverpool á Twitter af dáðustu sonum borgarinnar:
Bítlarnir á göngu á leikdegi pic.twitter.com/FOhm47tPMW
— Geir Thorsteinsson (@FootballGeir) May 5, 2016