Liverpool er sagt vera að undirbúa tilboð í senegalska framherjann Sadio Mane sem leikur með Southampton.
Vefútgáfa enska blaðsins Telegraph greinir frá þessu í kvöld en Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, er sagður vera mikill aðdáandi framherjans sem lék mjög vel í báðum leikjunum á móti Liverpool á nýafstöðnu tímabili.
Liverpool gæti hins vegar þurft að berjast við Manchester United og Tottenham um að fá Mane til liðs við sig en bæði lið hafa áhuga á leikmanninum sem er verðlagður á 20 milljónir punda.