José Mourinho var ráðinn knattspyrnustjóri Manchester United á föstudaginn var eftir að hafa verið atvinnulaus síðan um áramót. Mourinho mætti til vinnu í dag og fyrstu kynni hans af liðinu má sjá í myndskeiðinu hér að neðan.
Fyrstu verk Mourinhos á skrifstofunni voru að ganga frá samningum við tvo unga og efnilega leikmenn sem léku vel með Manchester United á síðustu leiktíð, þá Marcus Rashford og Cameron Borthwick-Jackson.
Mourinho is here! Watch our new boss arrive at the Aon Training Complex… #WelcomeJose https://t.co/qmBsWqat0u
— Manchester United (@ManUtd) May 30, 2016