Rodgers með leikmann Liverpool í sigtinu

Joe Allen gæti endurnýjað kynni sín við Brendan Rodgers á …
Joe Allen gæti endurnýjað kynni sín við Brendan Rodgers á næstu leiktíð. AFP

Brendan Rodgers tók nýverið við stjórnartaumunum hjá skosku meisturunum Glasgow Celtic, en hann hafði verið án starfs síðan hann var rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Liverpool í október á síðasta ári. 

Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Rodgers hafi áhuga á að klófesta fyrrum leikmann sinn bæði hjá Swansea City og Liverpool, Joe Allen og lokka hann fyrir til Glasgow. Glenn Corcoran, umboðsmaður Allen, lét hafa eftir sér í samtali við breska fjölmiðla að launakostnaður Allen gæti verið Glasgow Celtic ofviða. 

Rodgers keypti Allen til Liverpool á 15 milljónir punda haustið 2012 og lét hafa eftir að hann hafi tryggt sér þjónustu hins velska Xavi. Allen hefur ekki verið í náðinni hjá Jürgen Klopp með við knattspyrnustjórastarfinu af Rodgers hjá Liverpool og gæti hann því leitað á önnur mið í sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert