Michael Carrick, hinn 34 ára gamli miðjumaður úr Manchester United, hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við félagið.
Paddy Crerand, fyrrverandi leikmaður Manchester United, greindi frá þessu á MUTV-sjónvarpsstöðinni. Samningur Carrick átti að renna út í sumar og virtist lengi stefna í að hann færi frá félaginu en nú er ljóst að hann heldur kyrru fyrir á Old Trafford í það minnsta eitt ár til viðbótar.