Man. Utd kaupir Eric Bailly

Eric Bailly.
Eric Bailly. AFP

Eric Bailly er genginn til liðs við Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Bailly samdi við United til fjögurra ára. 

Bailly kemur til United frá Villarreal þar sem hann hefur spilað 47 leiki. Hann er 22 ára gamall Fílabeinsstrendingur og á 15 landsliðsleiki að baki. Hann var hluti af landsliði Fílabeinsstrandarinnar sem vann Afríkubíkarinn árið 2015.

„Það er sannkallaður draumur að ganga til liðs við Manchester United. Ég vil verða eins góður og ég mögulega get og ég trúi því að Mourinho hjálpi mér að þróast á réttan hátt og hjá réttu liði,“ sagði Bailly við heimasíðu Manchester United.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka