Þýska liðið Borussia Dortmund hefur hafnað tilboði í miðjumaninn Henrikh Mkhitaryan.
Enska blaðið Mirror greinir frá því að Manchester United hafi boðið 19 milljónir punda í Armenann, sem er 27 ára gamall, en Dortmund hafi hafnað því tilboði.
Mkhitaryan á eitt ár eftir af samningi sínum við Dortmund svo félagið gæti látið hann fara fyrir rétta upphæð í stað þess að missa hann frá sér án greiðslu á næsta ári.