Vardy áfram hjá Leicester

Jamie Vardy á ferðinni í leiknum gegn Slóvakíu.
Jamie Vardy á ferðinni í leiknum gegn Slóvakíu. AFP

Enski landsliðsframherjinn Jamie Vardy, sem útlit var fyrir að væri á leið til Arsenal, hefur ákveðið að halda kyrru fyrir hjá Englandsmeisturum Leicester.

Vardy, sem er 29 ára gamall, hefur samið að nýju til fjögurra ára við Leicester en þetta tilkynnti félagið í dag. „Báðir aðilar vonast til þess að með þessari yfirlýsingu ljúki vangaveltum varðandi framtíð Jamies,“ sagði í yfirlýsingunni.

Vardy er þessa dagana með enska landsliðinu á EM í Frakklandi þar sem leikur við Ísland í 16-liða úrslitum á mánudaginn er næstur á dagskrá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka