Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham keypti í dag miðjumanninn Victor Wanyama frá Southampton á 11 milljónir punda.
Wanyama, sem er 24 ára gamall Keníumaður, semur við liðið til fimm ára en hann hefur verið á mála hjá Southampton frá árinu 2013 þar sem hann lék 80 leiki og skoraði fjögur mörk.
Wanyama hittir fyrir hjá Tottenaham sinn gamla stjóra hjá Southampton, Mauricio Pochettino.