Markvörður bandaríska knattspyrnuliðsins Minnesota United er væntanlega ekki sérlega ánægður með lífið og tilveruna sem stendur en myndskeið af sjálfsmarki hans fer nú sem eldur í sinu um netheima.
Sammy Ndjock frá Kamerún varði mark Minnesota gegn enska úrvalsdeildarliðinu Bournemouth í gær. Hann ætlaði að drífa sig í að kasta boltanum til samherja - en það heppnaðist ekki sérlega vel!
Bournemouth vann öruggan sigur, 4:0, þar sem Callum Wilson skoraði tvö mörk og Lewis Grabban eitt en markið má sjá hérna: