Ekki verður annað sagt en að sænska goðsögnin Zlatan Ibrahimovic hafi byrjað með látum hjá Manchester United í fyrsta leik sínum fyrir félagið.
United spilaði vináttuleik við tyrkneska stórveldið Galatasaray og Svíinn skoraði glæsilegt mark með hjólhestaspyrnu.
Til að toppa allt saman fór leikurinn fram í Svíþjóð, heimalandi Zlatans Ibrahimovic sem alinn er upp í Malmö. Leikurinn fór fram á Ullevi-leikvangnum.
United vann 5:2. Hin mörkin skoruðu Juan Mata, Fellaini og Wayne Rooney skoraði tvívegis.