Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal er við það að ganga frá kaupum á Lucas Perez, framherja Deportivo La Coruna. BBC greinir frá þessu.
Arsenal og Everton hafa bæði haft augastað á Perez síðustu vikur en svo virðist sem Arsenal sé að ganga frá kaupum á honum á allra næstu dögum.
Perez er 27 ára gamall framherji en hann skoraði 17 mörk í 37 leikjum á síðustu leiktíð.
Leikmaðurinn flýgur að öllum líkindum til London í dag áður en kaupin verða staðfest á morgun.