Paul Pogba, leikmaður enska knattspyrnuliðsins Manchester United, var í stuði á samskiptavef Twitter í dag en þar var einn maður sem hafði fengið sér alveg eins hárgreiðslu og hann.
Pogba gekk til liðs við Manchester United á dögunum frá Juventus fyrir metfé en Pogba lék árum áður með enska liðinu og því kominn aftur á kunnuglegar slóðir.
Hann er nú þegar orðinn vinsæll hjá félaginu en einn stuðningsmaður ákvað að fá sér sömu hárgreiðslu og hann. Pogba er þekktur fyrir að skarta djörfum hárgreiðslum en einn stuðningsmaður ákvað að apa eftir honum og fékk ekkert sérstök viðbrögð frá kærustunni.
Pogba sagði þá að maðurinn þyrfti alls ekki að skipta um hárgreiðslu heldur væri best að hann myndi skipta um kærustu.
I tried changing my hairstyle to be like pogba nd now my gf hates me
— Man Utd Facebook (@MUFC_Facebook) August 27, 2016
@MUFC_Facebook Change the girl mate, keep the hair 😂
— Paul Pogba (@paulpogba) August 27, 2016