Brasilíski miðvörðurinn David Luiz gæti verið á leið aftur til Chelsea, en fregnir frá Englandi herma að Chelsea hafi boðið franska liðinu Paris SG 32 milljónir punda í varnarmanninn hárprúða.
Luiz lék með Chelsea frá 2011-14 en var seldur til Parísarliðsins fyrir 50 milljónir punda. Hann lék 143 leiki með Chelsea-liðinu og skoraði í þeim 14 mörk.