Ensku úrvalsdeildarliðin Arsenal og Liverpool komust auðveldlega áfram í fjórðu umferð enska deildabikarsins í knattspyrnu í kvöld.
Arsenal sigraði B-deildarlið Nottingham Forest, 4:0, á útivelli. Lucas Perez skoraði tvö marka Arsenal og þeir Granit Xhaka og Alex Oxlade-Chamberlain gerðu sitt markið hvor.
Liverpool hafði betur gegn B-deildarliði Derby með þremur mörkum gegn engu en leikurinn fór fram á heimavelli Derby. Ragnar Klavan, Philippe Coutinho og Divock Origi skoruðu mörk gestanna í kvöld.
Jón Daði Böðvarsson og félagar hans í Wolves töpuðu 2:0 fyrir Newcastle. Jón Daði hóf leikinn á varamannabekk gestanna en kom inn á sem varamaður á 76. mínútu.
Óvænt úrslit urðu á Goodison Park í Liverpool en B-deildarlið Norwich sigraði Everton, 2:0. Everton hefur ekki tapað leik í úrvalsdeildinni það sem af er tímabili en mátti sætta sig við tap í kvöld.
Framlenging stendur yfir í leik Leicester og Chelsea en staðan var 2:2 að loknum hinum hefðbundnu 90 mínútum. Einnig þurfti að grípa til framlengingar í viðureign Bournemouth og Preston.
Úrslit kvöldsins:
Nott. Forest - Arsenal 0:4
Derby County - Liverpool 0:3
Leeds - Blackburn 1:0
Everton - Norwich 0:2
Brighton - Reading 1:2
Newcastle 2 - 0 Wolves