Manchester United sækir enska C-deildarliðið Northampton heim í 3. umferð deildabikarsins í kvöld. Leikmenn liðsins tóku létta æfingu á heldur óhefðbundnum stað í morgun.
José Mourinho, knattspyrnustjóri United, fór með sína menn út af hótelinu sem þeir gista á í aðdraganda leiksins og lét liðka sig til og taka léttar teygjur á bílastæði hótelsins.
Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18.45 en United hefur tapað þremur síðustu leikjum og því smá pressa á Mourinho og hans mönnum.
Manchester United players doing stretches in a car park in Northampton pic.twitter.com/GVb3O0cLdW #MUFC
— Manchester United (@ManUtdUpdates_) September 21, 2016