Wes Brown leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland og liðsmaður Manchester United á árunum 1996 til 2011 mun spila í ensku B-deildinni það sem eftir er tímabilsins.
Brown, sem 36 ára gamall, varnarmaður er genginn í raðir Blackburn Rovers og mun leika með liðinu út leiktíðina en hann hefur leikið með Sunderland frá því hann yfirgaf United fyrir fimm árum.