Kæmist ekki í liðið mitt

Claudio Ranieri er knattspyrnustjóri ensku meistaranna í Leicester.
Claudio Ranieri er knattspyrnustjóri ensku meistaranna í Leicester. AFP

Claudio Ranieri knattspyrnustjóri Englandsmeistara Leicester City segir að Wayne Rooney fyrirliði Manchester United kæmist ekki í byrjunarlið sitt.

„Rooney er frábær leikmaður og sannur meistari. En ég elska mína leikmenn og myndi ekki skipta þeim út fyrir neina aðra,“ sagði Ranieri við fréttamenn en hann er að undirbúa sína menn undir leikinn gegn Manchester United á Old Trafford sem fram fer í hádeginu á morgun.

Rooney hefur mátt þola harða gagnrýni fyrir frammistöðu sína á leiktíðinni og í gærkvöld svaraði kappinn fyrir sig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert