Tottenham verður án fimm leikmanna vegna meiðsla þegar liðið sækir CSKA Moskvu heim í kvöld í E-riðli Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.
Harry Kane er meiddur í ökkla en Tottenham verður einnig án bakvarðarins Danny Rose og miðjumannanna Eric Dier, Mousa Dembélé og Moussa Sissoko.
Dier, Rose og Dembélé glíma við meiðsli aftan í læri en Sissoko fékk heilahristing í sigrinum á Middlesbrough á laugardag.
Tottenham tapaði fyrsta leik sínum í riðlinum gegn Monaco en CSKA gerði jafntefli við Leverkusen.