Zlatan Ibrahimovic hefur ekki skorað í síðustu fimm leikjum sínum með Manchester United og er það mesta markaþurrð Svíans í tíu ár.
Zlatan hefur nú spilað í 498 mínútur án þess að skora mark, en í leikjunum fimm sem hann hefur ekki náð að skora í hefur hann átt 23 skottilraunir, fengið dæmdar á sig 17 aukaspyrnur, fengið tvö gul spjöld og ekki átt neina stoðsendingu.
Svíinn byrjaði vel með United og skoraði 4 mörk í fyrstu fimm leikjunum í deildinni en síðan hefur hvorki gengið né rekið hjá honum.