Lucas Perez, framherji Arsenal, verður frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir í deildabikarleiknum gegn Reading í fyrrakvöld.
Perez, sem kom til Arsenal frá Deportivo La Coruna, meiddist á ökkla og er talið að hann verði frá keppni næstu sex vikurnar. Hann mun þar með missa af deildarleikjunum á móti Tottenham og Manchester United auk leiksins við Paris SG í Meistaradeildinni.