Gylfi fær sænskan liðsfélaga

Martin Olsson með Swansea-treyjuna.
Martin Olsson með Swansea-treyjuna. Ljósmynd/swanseacity.net

Gylfi Þór Sigurðsson hefur fengið nýjan liðsfélaga hjá Swansea en félagið festi kaup á sænska bakverðinum Martin Olsson frá Norwich.

Olsson er 28 ára gamall, vinstri bakvörður og skrifaði hann undir samning til tveggja og hálfs árs við Swansea. Hann er annar leikmaðurinn sem félagið fær í janúar en áður hafði Swansea keypt hollenska kantmanninn Luciano Narsingh frá PSV Eindhoven.

Olsson hafði leikið með Norwich frá árinu 2013, alls 129 leiki. Hann á að baki 40 landsleiki fyrir Svíþjóð og hefur skorað í þeim fimm mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert