Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að enskir fjölmiðlar hafi lagt honum orð í munn.
Guardiola var sagður hafa látið út úr sér að leikmenn Manchester City væru ekki nógu góðir eftir að liðið féll niður í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið steinlá fyrir Everton, 4:0, um liðna helgi og er tíu stigum á eftir toppliði Chelsea.
„Allir leikmenn mínir eru góðir leikmenn. Ég sagði þetta ekki og ég hugsa ekki svona heldur. Þeir eru nógu góðir,“ sagði Guardiola.