Með fleiri mörk en Messi og Ronaldo

Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. AFP

Svíinn Zlatan Ibrahimovic er búinn að skora fleiri mörk heldur en Lionel Messi og Cristiano Ronaldo frá því tímabilið 2015-16 hófst.

Samtals er Zlatan búinn að skora 76 mörk fyrir Paris SG og Manchester United, einu marki meira en Messi og þremur mörkum meira en Ronaldo, en Zlatan tryggði Manchester United sigurinn gegn Blackburn í bikarkeppninni í gær.

Zlatan hefur þar með skorað 23 mörk fyrir Manchester-liðið í öllum keppnum á leiktíðinni en hann skoraði 53 mörk fyrir Parísarliðið í öllum keppnum á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert