Enska B-deildarliðið Blackburn Rovers sem í gær rak knattspyrnustjórann Owen Coyle var ekki lengi að finna eftirmann hans.
Hinn 53 ára gamli Tony Mowbray var í dag ráðinn stjóri liðsins og honum er ætlað að koma Blackburn-liðinu úr fallsæti en það er í 23. sæti af 24 liðum og er þremur stigum frá öruggu sæti í deildinni.
Mowbray er þrautreyndur stjóri sem meðal annars hefur stýrt liðum Middlesbrough, Celtic, WBA, Hibernian og síðast liði Coventry.