Jón Daði Böðvarsson og félagar hans í Wolves töpuðu á heimavelli fyrir Birmingham í ensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.
Jón Daði lék allan tímann í fremstu víglínu Wolves sem lenti 2:0 undir eftir hálftíma leik en Nouha Dicko minnkaði muninn fyrir Úlfanna á 73. mínútu en þá voru liðsmenn Birmingham orðnir manni færri.
Wolves er í 20. sæti deildarinnar og það stefnir í fallbaráttu liðsins þetta var fjórða Úlfanna í röð í deildinni. Birmingam er í 13. sætinu.