Sigur Manchester United í enska deildabikarnum í dag er 24. titillinn sem José Mourinho vinnur á ferli sínum.
Mourinho er nú búinn að vinna nákvæmlega helminginn af fjölda titla sem Sir Alex Ferguson vann á ferli sínum, en hann landaði 48 titlum á sínum tíma.
Þetta var jafnframt í 5. sinn sem liðið vinnur þennan titil, og hefur aðeins Liverpool unnið hann oftar, eða 8 sinnum.