Með þrennunni sem Harry Kane skoraði fyrir Tottenham í 4:0 sigri liðsins gegn Stoke á White Hart Lane í gær eru þrír leikmenn jafnir á toppi markalistans í ensku úrvalsdeildinni.
Það stefnir í æsilegan slag um markakóngstitilinn í ár en þessir eru markahæstir í deildinni:
17 - Harry Kane, Tottenham
17 - Alexis Sánchez, Arsenal
17 - Romelu Lukaku, Everton
16 - Diego Costa, Chelsea
15 - Zlatan Ibrahimovic, Man Utd.
14 - Jermaine Defoe, Sunderland
12 - Dele Alli, Tottenham