Liverpool saknaði sárlega Jordan Hendersons í leiknum gegn Englandsmeisturum Leicester City á King Power-vellinum í gærkvöld þar sem Leicester fagnaði sínum fyrsta sigri í deildinni frá því á gamlársdag.
Henderson gat ekki spilað vegna meiðsla og Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, telur ólíklegt að fyrirliðinn verði klár í slaginn á laugardaginn þegar Liverpool tekur á móti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.
Liverpool hefur unnið 65% af leikjum sínum í deildinni þegar Henderson hefur verið í byrjunarliðinu en aðeins 33% þegar hans hefur ekki notið við.