Erik Lamela, miðjumaður Tottenham, mun ekki leika meira með liðinu á leiktíðinni þar sem hann þarf að gangast undir aðgerð á mjöðm.
Forráðamenn Tottenham staðfestu þetta í dag, en þessi 25 ára gamli argentínski knattspyrnumaður hefur verið frá keppni vegna meiðslanna síðan í lok október. Hann hefur því aðeins komið við sögu í 9 leikjum með liðinu í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni.
Lamela er á sínu fjórða tímabili hjá Tottenham eftir að hafa verið keyptur frá Roma á 30 milljónir evra sumarið 2013.