„Er virkilega stoltur“

Rafael Benítez.
Rafael Benítez. AFP

„Ég er virkilega stoltur og ég verð að þakka starfsliði mínu, stuðningsmönnunum og borginni,“ sagði Rafael Benítez stjóri Newcastle eftir sigurinn gegn Preston í ensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld en með sigrinum endurheimti Newcastle sæti sitt í úrvalsdeildinni.

„Þetta er búið að vera langt og strangt tímabil en við verðskuldum að vera komnir upp því leikmenn hafa lagt svo hart að sér,“ sagði Bentítez, sem tók við stjórastarfinu hjá Newcastle í mars í fyrra en tókst ekki að bjarga liðinu frá falli úr úrvalsdeildinni.

„Það var alveg skýrt að eftir lokaleikinn á síðustu leiktíð þá vildi ég sýna hollustu mína og byggja upp nýtt lið og setja stefnuna á að komast upp sem fyrst,“ sagði Benítez.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert