Enska úrvalsdeildarliðið Burnley sem landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson leikur með hefur leyst Joey Barton undan samningi við félagið.
Barton var úrskurðaður í 18 mánaða bann frá öllum afskiptum af knattspyrnu eftir að hafa verið fundinn sekur um umtalsverð veðmál tengd knattspyrnu í síðasta mánuði en hann játaði að hafa veðjað á um 1.260 leiki á undanförnum tíu árum. Hann gekk í raðir Burnley um áramótin og lék 14 leiki með liðinu í deildinni og skoraði í þeim eitt mark.
Barton, sem er 34 ára gamall, á langan og litríkan feril að baki og hann sat m.a. í fangelsi um skeið vegna líkamsárásar. Hann lék áður með Manchester City, Newcastle, QPR, Marseille og Rangers og á að baki einn landsleik fyrir Englands hönd.
Þá hefur Michael Kightly einnig verið losaður undan samningi við liðið.