Knattspyrnumaðurinn Mohamed Salah er genginn í raðir enska félagsins Liverpool frá Roma á 34 milljónir punda. Hinn 25 ára gamli Salah skrifar undir fimm ára samning við félagið.
Salah er næstdýrasti leikmaður í sögu Liverpool á eftir Andy Carroll sem var keyptur á 35 milljónir punda árið 2011.
Egyptinn skoraði 15 mörk í 31 leik fyrir Roma á síðustu leiktíð.