Javier Hernández er orðinn leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins West Ham eftir að félagið borgaði Bayer Leverkusen 16 milljónir punda fyrir þjónustu hans. „Chicharito“, eins og hann er kallaður, skrifar undir þriggja ára samning við félagið.
Hernández fær 140.000 pund í vikulaun eða um 19,3 milljónir króna. Mexíkóinn spilaði 103 leiki fyrir Manchester United áður en hann gekk í raðir Leverkusen en hann var einnig lánaður til Real Madrid um tíma.
Hann er markahæsti leikmaður mexíkóska landsliðsins frá upphafi með 48 mörk í 96 leikjum fyrir þjóð sína.
Worth the wait.. 😉#WelcomeChicha pic.twitter.com/ZPJQLPnRpb
— West Ham United (@WestHamUtd) July 24, 2017