Leicester City hefur lækkað verðmiðann á miðjumanninum Riyad Mahrez sem fyrr í sumar lýsti því yfir að hann vilji yfirgefa félagið.
Leicester setti í fyrstu 50 milljóna punda verðmiða á Alsírbúann en að því er fjölmiðlar á Englandi greina frá í dag er nú Mahrez falur fyrir 40 milljónir punda.
Leicester hefur þegar hafnað 30 milljóna punda tilboði frá ítalska liðinu Roma í leikmanninn en vitað hefur verið af áhuga Lundúnaliðanna Arsenal og Tottenham á Mahrez, sem fór á kostum þegar Leicester varð óvænt Englandsmeistari í fyrra og var útnefndur leikmaður ársins af leikmönnum deildarinnar.