Enska úrvalsdeildarfélagið Burnley, sem landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson leikur með, gekk í dag frá kaupunum á skoska varnarmanninum Phil Bardsley, en hann kemur til félagsins frá Stoke City.
Bardsley er 32 ára gamall, uppalinn hjá Manchester United, en hefur spilað með Stoke í þrjú ár. Þar áður var hann í átta ár hjá Sunderland. Þegar hann var hjá United var hann meðal annars lánaður til Burnley um tíma árið 2006 þegar liðið var í B-deildinni.
Bardsley skrifar undir tveggja ára samning við Burnley og er fjórðu kaup félagsins í sumar. Hann er jafnframt annar leikmaðurinn sem kemur frá Stoke, en áður hafði Jonathan Walters komið sömu leið.