Chelsea hefur lánað framherjann Izzy Brown til nýliða Brighton í ensku úrvalsdeildinni, en Brown þessi komst raunar upp úr B-deildinni með öðru liði á síðasta tímabili.
Brown, sem er tvítugur, var á láni hjá Huddersfield í fyrra og skoraði þá fimm mörk þegar liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni. Þar mun hann hins vegar taka slaginn með Brighton.
Brown framlengdi um leið samning sinn við Chelsea, en hann hefur verið á mála hjá liðinu síðan 2013 en lánaður að auki til Vitesse og Rotherham.