Það hefur eflaust ekki farið framhjá mörgum að Gylfi Þór Sigurðsson skrifaði undir fimm ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Everton í dag en hann var keyptur frá Swansea á metfé.
Gylfi mun leika á treyju númer 18 hjá nýja liðinu, en Gareth Barry, sem gekk í raðir WBA í gærkvöldi var áður í treyju númer 18.
Leikmenn eins og Wayne Rooney og Phil Neville eru meðal þeirra sem hafa leiktið í treyju númer 18 hjá liðinu í gegnum tíðina.
📸#WelcomeGylfi pic.twitter.com/0NyqggPJ7x
— Everton (@Everton) August 16, 2017