Argentínumaðurinn Sergio Agüero á möguleika á að skrá nafn sitt í sögubækurnar hjá Manchester City á morgun.
Agüero er þremur mörkum frá því að bæta markmetið hjá Manchester City sem eru í eigu Eric Book en hann skoraði 177 mörk fyrir félagið.
City tekur á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni á morgun. City trónir á toppi deildarinnar með 13 stig en Palace er án stiga og hefur enn ekki náð að skora mark í deildinni.
„Metið mun falla en hvar veit ég ekki. Það yrði skemmtilegra fyrir hann að bæta það á heimavelli,“ segir Pep Guardiola, stjóri City.
Agüero er markahæstur í deildinni ásamt Romelu Lukaku, Manchester United, en báðir hafa þeir skorað 5 mörk.