Laglegt mark hjá Jóni Daða

Jón Daði fagnar markinu í gær.
Jón Daði fagnar markinu í gær. Ljósmynd/Skjáskot af Twitter.

Landsliðsframherjinn Jón Daði Böðvarsson skoraði laglegt jöfnunarmark fyrir Reading sem gerði 1:1 jafntefli við Hull í ensku B-deildinni í knattspyrnu. 

„Ég vil til­einka mömmu þetta mark - hún hef­ur bar­ist við veik­indi heima svo ég helga henni þetta mark,“ sagði Jón Daði í viðtali á vef Rea­ding en markið má sjá hér að neðan.

Frétt mbl.is: Tilnefndi veikri móður markið

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert