Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, sneri aftur til vinnu hjá félaginu í dag eftir að hafa misst af æfingu í gær þar sem hann gekkst undir læknisskoðun.
Klopp var ekki lagður inn á sjúkrahúsið í gær eftir að hafa verið í rannsóknum í kjölfar þess að hafa liðið undarlega, en fjarvera hans í gær á ekki að hafa áhrif á störf hans fyrir næsta leik gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.
Hvað leikmenn liðsins varðar er Sadio Mane sagður í óvissu vegna meiðsla sem hafa verið að plaga hann, en annars ættu allir að vera klárir í slaginn og nánast í fyrsta sinn í vetur sem Klopp mun geta valið úr öllum sínum leikmönnum á sama tíma.