Verðlaunin fyrir október í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu féllu Manchester City í skaut og kemur það engum á óvart eftir frábært gengi síðustu vikurnar.
Pep Guardiola var útnefndur stjóri mánaðarins en lærisveinar hans hafa verið á gríðarlegri siglingu og eru með átta stiga forskot á toppi deildarinnar.
Þjóðverjinn Leroy Sané var valinn leikmaður mánaðarins en kantmaðurinn snöggi skoraði þrjú mörk í október og gaf þrjár stoðsendingar. Þetta er í fyrsta sinn sem hann hlýtur þessa viðurkenningu.