Fregnir frá Frakklandi herma að Paris SG sé að undirbúa tilboð í belgíska miðjumanninn Maourane Fellaini, leikmann Manchester United.
Samningur Belgans hárprúða við Manchester-liðið rennur út eftir tímabilið. Samningaviðræður hans við félagið hafa ekki skilað neinu en Fellaini er sagður hafa hafnað tilboði frá United sem bauð honum 120 þúsund pund í vikulaun.
Parsíarliðið hyggst bjóða Belganum fjögurra ára samning en hann hélt upp á 30 ára afmæli sitt í gærkvöld með því að vera í tapliði United gegn Basel í Meistaradeildinni. Hann kom til Manchester United frá Everton fyrir fjórum árum.