Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliði Burnley sem mætir Stoke á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Jóhann hefur leikið mjög vel að undanförnu og Burnley hefur komið mikið á óvart.
Með sigri í kvöld kemst Burnley upp í fjórða sæti deildarinnar, eitthvað sem afskaplega fáir bjuggust við af liðinu í byrjun leiktíðar.