Skytturnar skora og skora (myndskeið)

Arsenal vann auðveldan sex marka sigur á botnliði Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Fyrirliðinn Martin Ödegaard, Gabriel Martinelli, Kai Havertz, Declan Rice og Ben White komust allir á blað auk þess sem Jayden Bogle varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Staðan var 5:0 í leikhléi og eftirleikurinn var því auðveldur fyrir Skytturnar í síðari hálfleik.

Arsenal hefur skorað 31 mark í síðustu sex deildarleikjum, sem gerir rúmlega fimm mörk að meðaltali í leik.

Mörkin sex má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert