Pirraður Klopp gekk út úr miðju viðtali

Jürgen Klopp eftir leikinn í dag.
Jürgen Klopp eftir leikinn í dag. AFP/Paul Ellis

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var vægast sagt ekki sáttur með spurningar fréttamanns ViaPlay frá Danmörku. 

Var Klopp spurður út í tap liðsins fyrir Manchester United, 4:3, í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppni karla á Old Trafford í dag. 

Er danski fréttamaðurinn spurði hvort leikjaálagið hafi verið ástæðan fyrir tapinu svaraði Klopp: „Þú ert augljóslega ekki í góðu formi og ég hef enga þolinmæði fyrir þér,“ og gekk út.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert