Manchester United tekur á móti Liverpool í stórleik 32. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Old Trafford í Manchester á sunnudaginn klukkan 15:30.
Liverpool er í efsta sæti deildarinnar með 70 stig á meðan Manchester United er í sjötta sætinu með 48 stig.
Það er allt undir hjá báðum liðum, enda Liverpool í harðri toppbaráttu, og United í harðri baráttu um sæti í Meistaradeildinni.
„Það er einhver ára yfir Liverpool,“ sagði Bjarni Þór Viðarsson á Síminn Sport þegar spáð var í spilin fyrir stórleik helgarinnar.