Kubica útskrifaður

Robert Kubica.
Robert Kubica.

Robert Kubica hefur verið útskrifaður af Santa Corona spítalanum í borginni Pietra Ligune á Ítalíu eftir 11 vikna meðhöndlun í framhaldi af alvarlegu slysi í ralli.

Talsmaður sjúkrahússins segir að Kubica sé við góða heilsu og  muni brátt hefja nýja endurhæfingarþjálfun utan spítalans, sem læknar spítalans munu hafa eftirlit með.

Kubica hlaut mörg beinbrot í rallslysinu og alvarlega skaða á hægri hendi en ekki vantað i mikuð upp á að hún færi af er vegrið úr stáli fór í gegnum bílinn í rallslysinu á Ítalíu í byrjun febrúar.

Hann ætlar að hvílast nokkra daga á heimili sínu í Mónakó áður en hann snýr aftur til Ítalíu til endurhæfingar.

Yfirlæknir endurhæfingarstöðvarinnar áætlar að hægt verði að segja til um það í ágústmánuði hvort og þá hvenær Kubica nái bata til að snúa aftur til keppni í formúlu-1 með Renault.

Rúma klukkustund tók að ná Kubica út úr brakinu áður …
Rúma klukkustund tók að ná Kubica út úr brakinu áður en hægt var að flytja hann undir læknishendur. reutes
Björgunarmenn bera Kubica frá bílbrakinu til sjúkraþyrlu á slysstað.
Björgunarmenn bera Kubica frá bílbrakinu til sjúkraþyrlu á slysstað. reuters
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert