Fernando Alonso og Kimi Räikkönen verða keppendur Ferrariliðsins á næsta ári, 2015.
Þetta tilkynnti liðsstjórinn Marco Mattiacci formlega í dag og sagði að samningar ökumannanna vegna næsta árs lægju fyrir staðfestir.
Þetta sagði Mattiacci í viðtali við sjónvarpsstöðina Sky Sports í Spa-Francorchamps. Með þessu bindur hann endi á vangaveltur um framtíð Alonso og Räikkönen.